Dagskrá:
1. Fjallskil 2021 - 2108017
Nefndin kom saman að undangengnum undirbúningi nefndarmanna.
Farið var yfir og gengið frá gangnaseðlum sauðfjár fyrir haustið 2021.
Heildarfjöldi fjár sem fjallskil eru lögð á eru 4426.
Heildarfjöldi dagsverka er 391.
Gangnaseðlar verða birtir á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar og sendir til þeirra sem þess óska.
1. göngur verða 3. og 4. september.
2. göngur verða 17. - 19. september.
Dagsverk er kr. 12.000.-
Nefndin minnir á að enn eru í gangi samkomutakmarkanir vegna Covid 19 og þarf því að halda utanaðkomandi mannskap við réttarstörf í lágmarki. Í réttum gilda almennar reglur um fjöldatakmarkanir sem miðast við 200 manns og ber réttastjórum að tryggja að því verði fylgt eftir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00