Landbúnaðar- og atvinnumálanefnd

13. fundur 14. maí 2013 kl. 10:01 - 10:01 Eldri-fundur

13. fundur Landbúnaðar- og atvinnumálanefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, mánudaginn 13. maí 2013 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson, Aðalsteinn Hallgrímsson, Bjarkey Sigurðardóttir, Jónas Vigfússon og Atli Hörður Bjarnason.
Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.

Ingibjörg Isaksen sat fundinn undir umræðum um fyrstu þrjú mál á dagskrá.

Dagskrá:

1.  1305008 - Heimboð í sveitina
 Heimboð í sveitina gekk vel þrátt fyrir að veður hefði mátt vera betra. Er það samdóma álit nefndarmanna að halda skuli áfram á sama hátt í framtíðinni.
   
2.  1305007 - Ferðaþjónustubæklingur fyrir Eyjafjarðarsveit
 ákveðið að gefa út nýjan bækling um Eyjafjarðarsveit og innheimta kr. 15.000- fyrir hverja skráningu.
   
3.  1302019 - Merking gönguleiða
 Atvinnnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur samþykkt að veita 1.250 þús. kr. styrk til merkingar gönguleiða á Uppsalahnjúk og Bónda gegn sama mótframlagi. ákveðið að leita ráða hjá Bjarna Guðleifssyni um útfærslur og funda aftur þegar frekari gögn liggja fyrir.
   
4.  1302007 - Eyðing skógarkerfils með vegum - styrkumsókn til Vegagerðarinnar 2013
 Vegagerðin hefur samþykkt 500 þús. kr. styrk til eyðingar skógarkerfils meðfram vegum.
   
5.  0711031 - Kerfill - átaksverkefni um eyðingu kerfils
 Farið var yfir tillögu umhverfisnefndar um aðgerðaráætlun vegna eyðingar skógarkerfils og tillagan samþykkt. ákveðið að halda íbúafund til að ræða um átakið sem fyrst.
   
6.  1002017 - Samþykkt um búfjárhald í Eyjafjarðarsveit
 Tillaga að samþykkt um búfjárhald hefur verið til yfirferðar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Nefndin samþykkir breytingartillögur ráðuneytisins.
   
7.  1211036 - Atvinnuátakið vinna og virkni
 Lagt fram til kynningar.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:45

Getum við bætt efni síðunnar?