Landbúnaðar- og atvinnumálanefnd

14. fundur 31. október 2013 kl. 10:58 - 10:58 Eldri-fundur

14. fundur Landbúnaðar- og atvinnumálanefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, miðvikudaginn 30. október 2013 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson formaður, Aðalsteinn Hallgrímsson aðalmaður, Bjarkey Sigurðardóttir aðalmaður, Atli Hörður Bjarnason varamaður, Ketill Sigurður Jóelsson varamaður og Jónas Vigfússon sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði:  Bjarkey Sigurðardóttir,.

Ingibjörg Isaksen var viðstödd fyrstu tvo fundarliði.

Dagskrá:

1.  1211029 - Samningur við þjónustuaðila útilegukortsins
 Ingibjörg kynnti fyrir nefndinni niðurstöðu fundar varðandi útilegukortið og að því hefði verið sagt upp nú í haust. í sumar varð gríðarleg aukning á tjaldsvæðinu og flestir á útilegukortinu. það þýddi hins vegar ekki auknar tekjur vegna uppbyggingar kortsins. Eftir umfjöllun lagði nefndin það til að erindið fari einnig fyrir íþrótta- og tómstundanefnd, afsögn kortsins standi en útiloki ekki að taka upp samstarf aftur síðar.
   
2.  1302019 - Merking gönguleiða
 Samþykkt að halda verkefninu áfram og vísa því til gerðar fjárhagsáætlunar.
   
3.  1309009 - Búfjárleyfi 2013
 Farið var yfir þá sem hafa búfjárleyfi og þær umsóknir sem komið hafa inn.
   
4.  1308004 - Hjallatröð 1 - umsókn um leyfi fyrir hænur
 Nefndin samþykkir búfjárleyfi fyrir kornhænur til handa Eiríki G. Stephensen
   
5.  1310023 - Komdu norður átakið veturinn 2013-2014
 Erindið tekið fyrir og samþykkt að veita verkefninu 50.000 krónur í styrk.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:27


 

Getum við bætt efni síðunnar?