Skipulagsnefnd

210. fundur 08. nóvember 2013 kl. 13:47 - 13:47 Eldri-fundur

210. fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn  í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 7. nóvember 2013 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson, Sigurður Eiríksson, Emilía Baldursdóttir, Jón Stefánsson, Anna Guðmundsdóttir varamaður og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, skipulagsfulltrúi.

Emilía vék af fundi við umfjöllun um 1. lið dagskrár og Anna við umfjöllun um 4. lið dagskrár.

Dagskrá:

1.  1311005 - Syðri-Hóll - skipting í þrjár jarðir
 Erindinu frestað til að afla frekari gagna.
   
2.  1311009 - Syðri-Klauf, nafn á nýtt íbúðarhús
 Eigendur nýs íbúðarhúss að Klauf óska eftir samþykki fyrir nafninu Syðri-Klauf á húsið.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
   
3.  1304010 - þverárnáma deiliskipulag
 Farið var yfir tillögu að deiliskipulagi þverárnámu sem hefur verið í vinnslu. Skipulagsnefnd ítrekar fyrri afstöðu hvað varðar svæði ES16-G sem kemur fram á korti í greinargerð frá því í ágúst 2013.
Samþykkt að auglýsa tillöguna þegar búið er að breyta henni í samræmi við fram komnar athugasemdir.
   
4.  1311010 - Reykhús - sandtaka úr áreyrum
 Erindinu frestað til að afla frekari gagna.
   
5.  1311011 - Lagfæring á hrygningarstöðum í Eyjafjarðará
 Erindinu frestað til að afla frekari gagna.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40

Getum við bætt efni síðunnar?