Dagskrá:
1. Brúarland (ÍB 15) og Brúarland efra svæði (L) (SL), breytingar á skilgreiningu í ASK - 2501006
Fyrir fundinum liggur erindi dags. 7.janúar 2025, frá Ingólfi Fr. Guðmundssyni hjá Kollgátu ehf. f.h. eiganda að jörðinni Brúarland; Heiðin Fasteignir ehf. og Heiðin Fasteignir II ehf. þar sem óskað er eftir leyfi skipulagsyfirvalda til breytinga á skilgreiningu á landi Brúarlands í núgildandi aðalskipulagi. Annars vegar er um að ræða svæði sem eru í dag í byggingu (ÍB15) sem íbúðarhúsasvæði en þar er óskað er eftir breytingu yfir í VÞ.
Hins vegar er um að ræða efra svæðið sem er í dag skógræktar- og landbúnaðarsvæði en óskað er eftir breytingu yfir í íbúðarhúsasvæði.
Deiliskipulag yrði síðan unnið fyrir efra svæðið í kjölfarið skv áður innsendum drögum.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að landeiganda verði heimilað að hefja skipulagsferli á breytingu hluta ÍB 15 í VÞ samkvæmt meðfylgjandi gögnum og leggja fyrir tillögu að aðalskipulagsbreytingu. Skipulagshönnuði er bent á að efra svæðið sem er í dag skógræktar- og landbúnaðarsvæði og óskað er eftir breytingu yfir í íbúðarhúsasvæði er þegar í ferli í rammahluta aðalskipulags.
2. Brúarland L152578 - umsókn um framkvæmdaleyfi til gerðar vegslóða og malarstæðis - 2411030
Fyrir fundinum liggur erindi frá teiknistofunni Kollgátu fyrir hönd landeiganda, þar sem óskað er eftir leyfi til gerðar vegslóða og malarstæðis skv. meðfylgjandi uppdrætti. Vegslóðinn er í beinu framhaldi af nýrri íbúðargötu Brúnagerðis í landi Brúarlands. Geymslusvæðið er um 50m. langt og 11m. breitt. Vegslóðinn tengir saman tvö svæði í eignarhaldi sama aðila og liggur yfir læk sem skilur svæðin af.
Skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn samþykki útgáfu framkvæmdaleyfis.
3. Leifsstaðir II L152714 - breyting á deiliskipulagi, hótel orlofshús - 2411007
Landeigandi, S&A eignir ehf. kt. 680918-1040 óska eftir breytingu á deiliskipulagi Leifsstaða 2, verslunar- og þjónustusvæðis sem tók gildi 10.01.2024. Óskað er eftir að fá að breyta deiliskipulaginu með fjölgun gistimöguleika og aukningu gistieininga, sbr. meðfylgjani erindi dags. 07.11.2024. Gildandi deiliskipulag Leifsstaða 2 fylgir með fundargögnum.
Á síðasta fundi sveitarstjórnar var fallist á að málsaðilar yrðu boðaðir á fund skipulagsnefndar til að kynna áformin frekar og eru þeir mættir í þeim tilgangi.
Undir fundarliðinn mættu þau Lilja Filipusdóttir, skipulagshönnuður, og Aðalsteinn Stefnisson landeigndi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að landeiganda verði heimilað að fara í skipulagsferli. Nefndin bendir umsækjanda jafnframt á að samhliða þurfi að endurskoða heimildir í aðalskipulagi.
4. Ytri-Varðgjá deiliskipulag íbúðarsvæðis - 2308016
Þann 19.nóvember sl. barst afgreiðslubréf/umsögn Skipulagsstofnunar vegna íbúðarsvæðisins á Ytri-Varðgjá, sem hér er lögð fram til umfjöllunar.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir athugasemdir við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Sjórnartíðinda og svarar þeim á eftirfarandi hátt:
Deiliskipulagið uppfyllir ekki ákvæði d) liðar 5.3.2.5 gr. skipulagsreglugerðar um heimilaða fjarlægð íbúðahúsa frá vegi en nú liggur fyrir að innviðaráðuneytið hefur, þann 24. júní 2024, hafnað beiðni sveitarfélagsins um undanþágu vegna 7 lóða við Hlíðár- og Hólagjá.
Svar: Skv. rammaskipulagi heiðarinnar sem nú er á leið í auglýsingu er m.a. gert ráð fyrir að hægt verði að hafa íbúðarhús 50 m frá Veigastaðavegi.
Á ÍB12 er heimilað að reisa að hámarki 40 íbúðarhús samkvæmt aðalskipulagi. Í greinargerð kemur fram að byggt verði upp í þremur áföngum þar sem gert er ráð fyrir 15 húsum í hverjum áfanga, sem þá þýðir að fjöldi íbúðarhúsa væri komið umfram heimildir aðalskipulags. Í tillögunni og á uppdrætti kemur þó skýrt fram að gert sé ráð fyrir 35 húsum. Þetta þarf að samræma.
Svar: Í kafla 3.1 um íbúðarsvæði kemur fram að „skv. ákvörðun sveitarfélagsins um íbúðarbyggðir í Vaðlaheiði er gert er ráð fyrir að svæðið byggist upp í þremur áföngum og miðað er að hámarki verði 15 íbúðarlóðir í hverjum áfanga“. Þarna er verið að vísa í ákvörðum sveitarfélagsins um íbúðarbyggðir almennt í heiðinni en ekki að 15 íbúðarlóðir séu í hverjum áfanga í þessu deiliskipulagi. Í sama kafla segir hvað eru margar íbúðarlóðir í hverjum áfanga en þær eru 14, 12 og 9 eða alls 35.
Skipulagshönnuði er falið að orða þetta á þann máta að heilmild sé til að byggja allt að 15 hús í hverjum áfanga.
Stofnunin telur tilefni til að benda á að til þess að uppfylla ákvæði reglugerðar væri mögulegt að afmarka lóðir á því svæði innan íbúðarbyggðarinnar sem nú er merkt sem ,,skógræktarsvæði“ og minnka það sem því nemur í stað afmörkunar á lóðum næst Veigastaðavegi, sem ekki uppfylla ofangreind ákvæði skipulagsreglugerðar.
Svar: Svar: Skv. rammaskipulagi heiðarinnar sem nú er á leið í auglýsingu er m.a. gert ráð fyrir að hægt verði að hafa íbúðarhús 50 m frá Veigastaðavegi.
Ítrekuð er ábending sem sett var fram um lýsingu um að gera þyrfti grein fyrir þeim mannvirkjum sem heimilað er að rífa bæði í greinargerð og á uppdrætti.
Svar: Í kafla 2.1 um staðhætti og upplýsingar kemur skýrt fram að gert sé ráð fyrir að núverandi hús víki og heimild til niðurrifs liggi fyrir. Þetta ætti að vera fullnægjandi en skipulagshönnuði er þó falið að sýna hús á uppdrætti sem heimilt er að fjarlægja.
Þrátt fyrir að ekki sé þekkt flóðahætta vegna ofanflóða á svæðinu þá telur stofnunin að í ljósi aukinna vatnavaxta almennt og hæðar lands á þessum slóðum sé æskilegt að skoða vel hvort tilefni sé til að setja ítarlegri skilmála um byggingar og/eða e.k. varnarmannvirki t.v. vegna mögulegra aur- og vatnsflóða.
Svar: Eins og fram kemur í kafla 3.9 um ofanflóðahættu eru engar heimildir um snjóflóð og skriðuföll á svæðinu og því er ekki talin þörf á að setja ítarlegri skilmála.
Í íbúðar- og frístundahverfum þarf skv. skipulagsreglugerð gr. nr. 5.3.2.16 að gera ráð fyrir grenndargámum, þ.e. gámum fyrir flokkaðan úrgang, svo sem pappír og plast.
Svar: Skipulagshönnuði er falið að bæta við svæði fyrir grenndargáma innan svæðisins.
Bent er á að á íbúðarsvæðum, svæðum fyrir frístundahús og öðrum svæðum þar sem gera má ráð fyrir mannfjölda og hætta getur verið á gróðureldum, sbr. afmörkun skógræktarsvæða innan íbúðarbyggðarinnar, skal gæta þess að fleiri en ein greið leið sé um og frá svæðinu. Tryggt þarf einnig að vera að nægt slökkvivatn sé til staðar.
Svar: Ekki er mögulegt að gera ráð fyrir fleiri akstursleiðum frá skipulagssvæðinu en margar greiðar gönguleiðir eru frá skipulagssvæðinu. Þá má segja að flóttaleið sé um þjónustuveg Norðurorku til austurs að Vaðlaheiði.
Þá er bent á að framsetning bæði hæðarlína og götuheita er óskýr á uppdrætti og mætti lagfæra.
Svar: Skipuagshönnuði er falið að bæta úr þessu með því að gera framsetningu hæðarlína og götuheita skýrari.
5. Syðra-Laugaland 2 L236505 - umsókn um breytingu á byggingarreit - 2408010
Á fundi sveitarstjórnar þann 17. október sl. var samþykkt að vísa erindi í grenndarkynningu, þar sem sótt er um að endurbyggja íbúðarhúsið (mhl 01) að Syðra-Laugalandi 2 að innan. Jafnframt er sótt um að endurbyggja bílskúr (mhl. 03) á lóðinni og stækka bygginguna. Umsækjandi hefur uppi áform um að leigja húsnæðið út fyrir ferðamenn. Erindið var sent í grenndarkynningu og er grenndarkynningartímabili nú lokið. Þrjár athugasemdir/umsagnir bárust og eru þær nú til umfjöllunar nefndarinnar.
Skipulagsnefnd hefur skilning á sjónarmiðum nágranna varðandi umferð um akstursleið til norðurs (og austurs) frá húsinu. Nefndin bendir á að sú leið liggur frá fleiri aðliggjandi húsum og engin kvöð liggur á lóðum þar varðandi hvaða akstursleið skuli notuð, en vinsamlegri ábendingu um að nýta frekar akstursleið til suðurs er komið til skila til umsækjenda. Varðandi athugasemd um "skemmtanahald", þá er það skilningur nefndarinnar að aðallega verði um útleigu til hópa, þar sem aðstaða er til hóflegra veisluhalda. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að byggingaráformin verði samþykkt, en áréttað að leiðbeiningum Húsafriðunarnefndar varðandi smíði glugga og hurða verði fylgt auk þess að Minjastofnun Íslands verði gert viðvart, komi í ljós fornminjar undir yfirborði jarðar í tengslum við framkvæmdirnar og verkið stöðvað sbr. 24.gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012
6. Melgerðirmelar - L219983 Deiliskipulag - Flugslóð - 2411037
Fyrir fundinum liggur erindi frá Sigtryggi Sigtryggssyni formanni svifflugfélags Akureyrar sem hafði samband vegna mikils áhuga meðlima félagsins til að fá úthlutaða lóð undir flugskýli á Melgerðismelum. Hann telur þetta vera mikilvægt fyrir starfsemi félagsins og meðlimi þess þar sem skortur er á flugskýlum á Eyjafjarðarsvæðinu.
Erindi lagt fram til umfjöllunar nefndarinnar
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að sveitarstjóra verði falið að kanna betur grundvöll og áhuga aðila á uppbyggingunni.
7. Hjarðarhagi L152628 - landamerkjalýsing - 2411041
Fyrir fundinum liggur fyrir til staðfestingar, merkjalýsing unnin af Jóni Hlyni Sigurðssyni dags. 08.11.2024 þar sem verið er að hnitsetja núverandi landamerki jarðarinnar Hjarðarhaga L152628.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
8. Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - Laugartröð 4 - 2411042
Fyrir fundinum liggur minnisblað frá Finni sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar varðandi Laugartröð 4 - gamla leikskólann, til umfjöllunar fyrir nefndina.
Erindinu frestað til næsta fundar.
9. Hólmatröð 10 - breyting á byggingarreit - 2501007
Erindi liggur fyrir fundi frá Dýra B.Hreiðarssyni sem sækir um f.h. lóðarhafa breytingu á byggingarreit ásamt stakstæðu tæknirými á lóðinni Hólmatröð 10. Meðfylgjandi eru teikningar á vinnslustigi dags 03.01.2025
Skipulagsnefnd telur einsýnt að áformin skerði í engu hagsmuni nágranna sbr. gr. 5.8.4 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og leggur því til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt sem frávik frá deiliskipulagi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00