Skipulagsnefnd

130. fundur 23. febrúar 2010 kl. 09:23 - 09:23 Eldri-fundur
130 . fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, mánudaginn 22. febrúar 2010 og hófst hann kl. 17:30.
Fundinn sátu:
óli þór ástvaldsson, Emilía Baldursdóttir, Karel Rafnsson, Einar Grétar Jóhannsson, Arnar árnason og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði:  Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.

Dagskrá:
1.     0804011 - Breyting á aðalskipulagi vegna efnistöku.
Lögð var fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2005 - 2025. Breytingin fellst í að bætt er inn á skipulagið 15 nýjum efnistökusvæðum. Jafnframt var lögð fram umhverfisskýrsla skipulagsáætlunarinnar unnin af verkfræðistofunni Eflu, dags. 15. febrúar 2010.
Nokkrar athugasemdir voru gerðar við umhverfisskýrsluna og sveitarstjóra falið að koma þeim á framfæri. þá var ákveðið að leyfa ekki efnistöku úr austurkvísl við Staðarey.
Varðandi efnistöku í landi Hvamms kom fram tillaga formanns um að fella hana einnig út af aðalskipulagi. Tillagan er svohljóðandi: "Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar leggur til að sprenginámu í Hvammi verði felld út úr fyrirliggjandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi. Fyrir liggur að upphaflegar forsendur að nýta meginþorra efnisins við lengingu Akureyrarflugvallar eru brostnar. Jafnframt liggur fyrir að náman verður mikið lýti í landslagim.a. fyrir flugfarþega að og frá Akureyrarflugvelli. þá liggur vinnslusvæði nærri einu fjölsóttasta utivistarsvæði landsmanna sem er Kjarnaskógur. Ekki er um afturkræfa framkvæmd að ræða né heldur endurnýjanlega auðlind. þessi afgreiðsla er samhljóða niðurstöðu umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar. Jafnframt liggja fyrir ábendingar um óheppilega nálægð við Kjarnaskóg og næstu bújörð sbr. athugasemdir frá skipulagsnefnd Akureyrar október 2008, umhverfisnefnd Akureyrar október 2008 og nágrannabýlinu Vöglum í Eyjafjarðarsveit ágúst 2008. í nýunninni umhverfisskýrslu Eflu verkfræðistofu koma fram ábendingar sem styðja ofangreindar athugasemdir. Einnig má bæta hér við að upplýsingar hafa borist um tjón á húsi á Akureyri þar sem uppgefin vegalengd frá sprengistað að húsi er um 1,5 km..
Tillagan var samþykkt með þrem atkvæðum gegn tveim.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu svo breytta samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
         
Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl.   19:10
Getum við bætt efni síðunnar?