Sveitarstjórn

467. fundur 20. ágúst 2015 kl. 08:44 - 08:44 Eldri-fundur

467. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, miðvikudaginn 19. ágúst 2015 og hófst hann kl. 15:00

Fundinn sátu:
Jón Stefánsson aðalmaður, Jóhanna Dögg Stefánsdóttir aðalmaður, Hólmgeir Karlsson aðalmaður, Halldóra Magnúsdóttir aðalmaður, Elmar Sigurgeirsson aðalmaður, Kristín Kolbeinsdóttir aðalmaður, Sigurlaug Hanna Leifsdóttir aðalmaður og Stefán Árnason ritari.
Fundargerð ritaði: Stefán Árnason skrifstofustjóri.

Dagskrá:

1. 1508005 - Byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - fundargerð 97. fundar byggingarnefndar
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktana.

2. 1508002F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 233
Fundargerð 233. fundar skipulagsnefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
2.1. 1508003 - Syðri-Varðgjá - Ósk um endurskoðun á fyrri afgreiðslu skipulagsnefndar
Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu erindisins.

2.2. 1508004 - Tilkynning um gildistöku ákvæða laga um mat á umhverfisáhrifum
Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu erindisins.

2.3. 1507009 - Álfaslóð - Ármann Sigursteinsson - umsókn um leyfi til að byggja smáhýsi
Afgreiðsla skipulagsnefndar er samþykkt.

2.4. 1506002 - Ytri-Varðgjá - Sveinbjörg Aðalsteinsdóttir - ósk um að staðsetja frísundahús á landinu og langning vegar að landinu
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.


3. 1507002 - Eyþing - fundargerð 266. fundar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

4. 1507003 - Eyþing - fundargerð 267. fundar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

5. 1507004 - Eyþing - fundargerð 268. fundar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

6. 1507005 - Eyþing - fundargerð 269. fundar
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

7. 1507011 - Þjóðarsáttmáli um læsi
Mennta- og menningarmálaráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands og Heimili og skóli gera að tillögu sinni að gerður verði þjóðarsáttmáli um læsi þess efnis að öll börn lesi sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Til að ná fram markmiðum sáttmálans býður mennta- og menningarmálaráðherra öllum bæjar- og sveitarstjórum landsins að undirrita sáttmála þar sem aðilar samningsins, ríki og sveitarfélög, skuldbinda sig til að vinna að því með öllum tiltækum ráðum að ná settu markmiði um læsi.
Sveitarstjórn samþykkir að veita sveitarstjóra umboð til að undirrita fyrirliggjandi þjóðarsáttmála um læsi f.h. Eyjafjarðarsveitar.

8. 1403012 - Skipulagsfulltrúi Eyjafjarðarsvæðis
Lagt fram til kynningar minnisblað sveitarstjóra um embætti skipulagsfulltrúa dags. 30. júní. Sveitarstjóra og oddvita falið að vinna málið áfram.

9. 1506012 - Fjárhagsáætlun 2016 - vinnuáætlun og áherslur
Samþykkt fyrirliggjandi minnisblað um tímaramma og vinnufyrirkomulag við fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.

10. 1508008 - Kynning á tillögu að kerfisáætlun 2015-2024 og umhverfisskýrslu
Rætt um kefisáætlun Landstnets. Sveitarstjórn ítrekar afstöðu sína um að ekki komi til greina að leggja loftlínu i gegnum sveitarfélagið og lýsir sig reiðubúna til samstarfs um að finna heppilega lagnaleið fyrir jarðstreng í gegnum sveitarfélagið.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30

 

Getum við bætt efni síðunnar?