Sveitarstjórn

527. fundur 25. janúar 2019 kl. 08:59 - 08:59 Eldri-fundur

527. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar
haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, 24. janúar 2019 og hófst hann kl. 15:00.

Fundinn sátu:
Jón Stefánsson, Halldóra Magnúsdóttir, Linda Margrét Sigurðardóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Eiður Jónsson, Stefán Árnason og Finnur Yngvi Kristinsson.
Fundargerð ritaði: Stefán Árnason skrifstofustjóri.

Dagskrá:

3. Norðurorka - Hitaveita í Eyjafjarðarsveit - 1901013
Á fundinn mætti Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku ehf. Farið var yfir möguleika á stækkun á dreifikerfi hitaveitu. Nú nær kerfið að austanverðu í Sámsstaði og að vestanverðu í Grund og Ysta Gerði.

1. Landbúnaðar- og atvinnumálanefnd Eyjafjarðarsveitar - 28 - 1901001F
Fundargerð 28. fundar landbúnaðar- og atvinnumálanefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
1.1 1901008 - Kynning á starfsemi Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar
Gefur ekki tilefni til ályktana.
1.2 1901009 - Kynning frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar
Gefur ekki tilefni til ályktana.
1.3 1901010 - Skil á markaðsverkefni
Gefur ekki tilefni til ályktana. Sveitarstjórn óskar eftir að fá kynningu frá Gunnari Thorberg markaðsráðgjafa.

2. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 299 - 1901002F
Fundargerð 299. fundar skipulagsnefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
2.1 1609004 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2018-2030
Að tillögu skipulagsnefndar samþykkir sveitarstjórn tillöguna og felur skipulagshönnuði að breyta skipulagsgögnum í samræmi við það.
2.2 1812010 - Kristján Vilhelmsson - Umsókn um nafn á íbúðarhús, Hólshús II, lóð A2, fasteignanr. F232-2340 - Vörðuhóll
Sveitarstjórn samþykkir erindið.
2.3 1812006 - Steinn Jónsson - Umsókn um stöðuleyfi fyrir frístundahús, Grásteinn
Afgreiðsla skipulagsnefndar er samþykkt.
2.4 1812013 - Brúnalaug - Ósk um samþykki fyrir byggingarreit undir viðbyggingu norðan við íbúðarhúsið Brúnalaug 1
Afgreiðsla skipulagsnefndar er samþykkt.
2.5 1901003 - Sámsstaðir 3 - Óskað eftir fastanúmeri á lóð
Sveitarstjórn samþykkir erindið enda verði kvöð um aðgengi og lagnaleiðir að lóðinni þinglýst samhliða stofnun lóðarinnar.
2.6 1901018 - Beiðni um heimild til að vinna deiliskipulag í landi Kropps
Gefur ekki tilefni til ályktana. Linda Margrét Sigurðardóttir lýsti sig vanhæfa og vék af fundi undir þessu lið.
2.7 1901019 - Kotra - deiliskipulag íbúðarsvæðis Íb13
Gefur ekki tilefni til ályktana.

4. Norðurorka - fundargerð 229. fundar - 1901005
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

5. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 866 - 1812014
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

6. Umhverfisstofnun - Ósk um tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í vatnasvæðanefnd - 1812016
Sveitarstjórn samþykkir að skipa Brynjar Skúlason sem fulltrúa sveitarfélagsins.

7. Vetrarþjónusta vega - minnisblað - 1901014
Sveitarstjórn samþykkir fyrirkomulag snjómokstur eins og fram kemur í minnisblaðinu. Samþykkt að kynna fyrirkomulagið fyrir íbúum.

8. Störf utan verkfallsheimildar - auglýsing - 1901012
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá auglýsingunni.

9. Markaðsstofa Norðurlands - Endurnýjun á samstarfssamingi, til ársloka 2021 - 1809042
Afgreiðslu frestað.

10. Samband íslenskra sveitarfélaga - Samþykkt um vinnumansal og kjör erlends starfsfólks - 1812011
Lagt fram til kynningar.

11. Búsaga - Greinargerð vegna framkvæmda í Saurbæ haustið 2017 og á árinu 2018 - 1812012
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45

Getum við bætt efni síðunnar?