Auglýsingablaðið

1239. TBL 16. apríl 2024

Auglýsingablað 1239. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 16. apríl 2024.



Sveitarstjórnarfundur
631. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, miðvikudaginn 17. apríl og hefst hann kl. 17:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir að ráða starfsfólk
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti er 81 dásamlegt barn á aldrinum 1 - 6 ára.

Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Framkvæmdir við byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann eru nú í fullum gangi sem opnar árið 2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Æskilegt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku.
  • Metnaður og áhugi til að taka þátt í þróun á góðu skólastarfi.

Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is

 


Aðalsafnaðarfundur Kaupangssóknar
verður haldinn í Kaupangskirkju þriðjudaginn 16. apríl nk. kl. 16:00 (ATH. FUNDARTÍMA).
Dagskrá fundar: Venjulega aðalfundarstörf.
Allir velkomnir.
Sóknarnefndin.

 


Iðunnarkvöld
verður miðvikudaginn 17. apríl kl. 20:00 í fundarherberginu í Laugarborg.
Ásta Heiðrún ætlar að gefa okkur smakk af og segja okkur frá uppskrift af Dukkah, sem er kornblanda og oft borin fram með góðri olíu og brauði.
Hlökkum til að hitta ykkur og nýjar konur ávallt velkomnar.
Kær kveðja, 1. flokkur.

 


Vortónleikar Karlakórs Eyjafjarðar
verða haldnir föstudaginn 19. apríl í Laugarborg kl. 20:00 og laugardaginn 20. apríl í Bergi á Dalvík kl. 16:00. Flutt verða lög við texta Kristjáns frá Djúpalæk í bland við annað efni.
Kórstjóri: Guðlaugur Viktorsson.
Aðgangur 4.000 kr.

 


Deleríum Búbónis!
Kirkjukór Grundarsóknar heldur tónleika í Laugarborg klukkan 20:00 að kvöldi síðasta vetrardags þ.e. 24. apríl. Kórinn hefur síðustu misserin verið að æfa lög Jóns Múla og Jónasar Árnasona í útsetningu Þorvaldar Arnar Davíðssonar kórstjóra. Við förum yfir lögin úr Deleríum Búbónis ásamt fleiri perlum úr smiðju þeirra bræðra.
Teflt er fram kór og hljómsveit og verður enginn svikinn af þessari kvöldstund.

 


Frá ferðanefnd Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit
Vorferð félagsins verður farin 28.-31. maí. Gist verður á Hóteli Múla í Reykjavík í 3 nætur. Ýmis kennileiti verða heimsótt bæði í Reykjavík og á Reykjanesi. Eigum auk þess heimboð hjá Guðna forseta. Fólk er beðið að skrá sig fyrir 1. maí. Kostnaður per mann er ca. 100 þúsund en til að fá nákvæmt verð þurfum við að fá sem fyrst fjölda þátttakenda.
Bestu kveðjur,
Páll Ingvarsson, sími 661-7627, pall.reyk@gmail.com
Leifur Guðmundsson, sími 894-8677, sydriklauf@simnet.is
Sveinbjörg Helgadóttir, sími 846-3222, sveinbjorghelgadottir707@gmail.com

 


Opnar dyr í Eyjafarðarsveit á sumardaginn fyrsta kl. 13:00-17:00
Ókeypis aðgangur en sums staðar er verið að selja veitingar og vörur.
Ferðaþjónustuaðilar, handverksfólk og smáframleiðendur í Eyjafjarðarsveit opna dyr sínar upp á gátt á sumardaginn fyrsta frá kl. 13:00-17:00.
Tónlistarfólk stígur einnig á stokk hér og þar og fermur list sína (athugið sérstakar tímasetningar).
Um að gera að rúnta inn í sveit og kynna sér málið.
Kort yfir staðina er að finna hér og á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar í viðburðum https://www.esveit.is/is

Getum við bætt efni síðunnar?