Félagsmálanefnd

161. fundur 13. janúar 2015 kl. 15:41 - 15:41 Eldri-fundur

161. fundur félagsmálanefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, þriðjudaginn 13. janúar 2015 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu:
Málfríður Stefanía Þórðardóttir formaður, Randver Karlsson aðalmaður, Adda Bára Hreiðarsdóttir aðalmaður, Hafdís Hrönn Pétursdóttir aðalmaður, Þórdís Rósa Sigurðardóttir aðalmaður og Karl Frímannsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Hafdís Hrönn Pétursdóttir .

Dagskrá:

1. 1412042 - Stígamót - fjárbeiðni fyrir árið 2015
Beiðni barst frá Stígamótum um fjárstuðning. Erindinu er hafnað í ljósi þess að styrkur er veittur til Aflsins sem er í heimabyggð og veitir sambærilega þjónustu.

2. 1009015 - Endurskoðun á jafnréttisáætlun Eyjafjarðarsveitar
Félagsmálanefnd leggur til að fyrirliggjandi jafnréttisáætlun Eyjafjarðarsveitar verði samþykkt.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:53

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?