Fjallið Kerling séð frá Fujian héraði - Opnun

Hinn japanski Hokusai gerði einhverja mikilvægustu grafík seríu listasögunnar á fjórða áratug nítjándu aldar með seríunni Þrjátíu og sex sýnir á fjallið Fuji.

Hér eru þrjár blek og vatnslita myndir af fjallinu Kerling séð frá Fuijan héraði í Kína. Þessar myndir vann ég eftir minni, á meðan vinnustofudvöl okkar Örnu Guðnýjar Valsdóttur í borginni Xiamen í Fujian héraði í Kína stóð, frá því um miðjan janúar fram í miðjan maí síðastliðinn. Myndirnar eru unnar með hefðbundnum kínverskum aðferðum eftir því sem mér var unnt sem listamaður þjálfaður eftir vestrænni myndlistar hefð. Kínversk landslagshefð er ólík okkar vestrænu hefð og snýst ekki um að koma frá sér sem raunverulegastri mynd af landslaginu, heldur tjáningu þess á pappírinn. Myndin er upplifun listamannsins á landslaginu, það sama gildir um þessar myndir mínar af Kerlingu.

Fjallið Kerling, sem fram hornið á gnæfir hér fyrir ofan vestan Dyngjunnar, er vanmetið fjall í fjalla metingi okkar íslendinga. Hún er 1542. metra há yfir sjávarmáli og er eina fjallið yfir 1500 metrum á landinu sem rís beint af láglendi. Kerling er tignarleg en hennar er gætt af myndarlegum nágrönnum og þannig heldur hún tign sinni leyndri nema frá vissum sjónarhornum og þá er sjón að sjá. Ég horfði á Kerlingu heiman frá mér í æsku en sá aðeins hluta hennar, því séð út um eldhúsgluggann í Kristnesi bar Bóndann hærra við himinn. Þótt hann sé tæpum tvöhundruð metrum lægri.

Ég bendi fólki á að gera myndaleit á vefnum að Kerlingu, þessu næst hæsta fjalli norðurlands. Herðubreið er víst ögn hærri þar sem hún rís á hásléttunni. Niðurstöður leitarinnar koma á óvart svo daprar eru þær. Það er kominn tími til að haddur Drottningar eyfirskra fjalla rísi og Kerlingin fái þann sess sem henni ber.

Myndirnar eru allar unnar með bleki og vatnslitum á xuan pappír.

Aðalsteinn Þórsson er fæddur árið 1964 í Eyjafirði.

Hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Myndlistarskólans á Akureyri árið 1993 og lauk MFA-gráðu í sjálfstæðri list frá Hollenska listaháskólanum, ArtEz, þá AKI2 í Enchede, Hollandi árið 1998.

Síðan þá hefur Aðalsteinn verið starfandi listamaður. Hans athafnasvæði var áfram í Hollandi árin eftir nám en hann flutti aftur heim árið 2016 og hefur verið búsettur hér síðan. Aðalsteinn hefur verið virkur í sýningahaldi, haldið einkasýningar tekið þátt í samsýningum og viðburðum, auk þess að vera sýningarstjóri. Aðalsteinn hefur einnig verið virkur í félagsmálum í menningargeiranum. Helsta verkefni hans er þó Einkasafnið, umhverfisverkefni sem hann starfrækir í gróðurvini í Eyjafirði, 10 km sunnan Akureyrar.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Aðalsteins https://steini.art.