Hrossakjötskvöld

Á lendar hár, um brjóstið sver
Og af mér lítið metinn
Skapið stirt og lundin þver
Svo nú skal Eldur étinn.

Við í Karlakór Eyjafjarðar höfum gaman af að gefa fólki að borða. Nú ætlum við að elda saltað hrossakjöt og bera það fram ásamt uppstúf og meðlæti, þann 13. mars, kl. 19.00 í Laugarborg.

Verð 4500 kr. Kórinn syngu nokkur lög.
Miðapantanir í síma 661-7627, Páll eða 864-7096, Jón.

Karlakór Eyjafjarðar.