Kaffihlaðborð í Laugarborg

Karlakór Eyjafjarðar verður með stórglæsilegt kaffihlaðborð í Laugarborg á sunnudaginn 22. febrúar nk. (konudaginn) kl. 14:00.

Kórinn syngur nokkur lög og að því loknu gæðum við okkur á kaffi og krásum.

Frítt fyrir 6 ára og yngri, 1.000 kr. fyrir 7 til 14 ára og 4.000 kr. fyrir 15 ára og eldri.

Söngur og gleði.

Allir eru velkomnir.