Stóriboli með tónleika á Leyni 21/3.

Hljómsveitin Stóriboli sem er með aðsetur í Eyjafjarðarsveitinni heldur tónleika á Leyni í Göngugötunni á Akureyri laugardagskvöldið 21/3 kl 21.
Hljómsveitina skipa þeir Helgi og Bergsveinn Þórssynir frá Kristnesi, Hafþór Önundarson frá Syðri-Tjörnum og Agnar Sigurðarson frá Svalbarðsströndinni.
Þessir kumpánar kynntust fyrir nokkrum misserum hjá Freyvangsleikhúsinu og hafa æft saman um nokkra hríð og hafa barið saman full af rokki og róli.
Hafþór mun einn og sér hita upp fyrir Stórabola, með frumsömdum kassagítar smellum. (Stóriboli var fyrst nefndur Kuldaboli en það er löngu úrelt). Allir velkomnir.