Yoga nidra á aðventu

Þriðjudaginn 16. des. kl. 17-18 býður Litla jógastofan tíma í yoga nidra. Tíminn verður í Hjartanu í Hrafnagilsskóla.
⭐️ Jóga nidra er leidd hugleiðsla milli svefns og vöku. Í þessu ástandi næst slökun þar sem hugur og líkami ná djúpri og nærandi hvíld.
⭐️ Við munum byrja tímann með léttri liðkun líkamans. Síðan leggjast iðkendur undir teppi með púða sér til stuðnings og eru leidd inn í djúpa slökun. Allur búnaður verður að staðnum. En ef þú átt góða dýnu, uppáhaldsteppi eða púða sem þú vilt taka með þér er það auðvitað sjálfsagt.
✍🏻 Ath. skráning í tímann er með því að senda tölvupóst á netfangið ingileif@bjarkir.net
Tíminn kostar 2500 kr.
Verið öll velkomin - Ingileif Ástvaldsdóttir, jógakennari