100% afleysingastarf í íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

100% afleysingastarf í íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar

Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar auglýsir 100% starf karlmanns til afleysinga frá maí og fram að áramótum 24/25 að minnsta kosti.

Helstu verkefni:

  • Öryggisgæsla
  • Þjónusta við viðskiptavini íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis
  • Þrif á húsnæði og útisvæði
  • Afgreiðsla

Hæfniskröfur:

  • Vera orðinn 18 ára
  • Geta staðist hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum
  • Hafa gott vald á íslensku og ensku
  • Hafa góða athyglisgáfu
  • Vera sjálfstæður í vinnubrögðum
  • Geta sýnt yfirvegun undir álagi
  • Hafa ríka þjónustulund
  • Vera stundvís
  • Vera jákvæður
  • Hafa hreint sakavottorð

Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambandsins.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars. Umsóknir, ásamt kynningarbréfi, ferilsskrá og lista yfir meðmælendur skulu sendar á netfangið karlj@esveit.is. Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar í síma 691-6633 á vinnutíma.