Atvinna

Fréttir

Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar óskar eftir að ráða starfsmann í 26% hlutastarf.

Vinnutíminn er kl. 6:00-8:00, 4 morgna í viku. Möguleiki á meira starfshlutfalli og afleysingum.

Í starfinu felst m.a. afgreiðsla og gæsla í sundlaug.

Áhersla er lögð á stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund og jákvæðni. Viðkomandi verður m.a. að hafa hreint sakavottorð og geta staðist hæfnispróf sundstaða.
Tekið er á móti umsóknum á netfangið sundlaug@esveit.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. september.

Nánari upplýsingar gefur Erna Lind í síma 895-9611.