Bókasafn Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

Vegna vetrarleyfis Hrafnagilsskóla verður bókasafnið lokað dagana 14., 15. og 16. febrúar nk.
Opnum aftur þriðjudaginn 20. febrúar.

Venjulega er opið á safninu:
Þriðjudaga kl. 14:00-17:00
Miðvikudaga kl. 14:00-17:00
Fimmtudaga kl. 14:00-18:00
Föstudaga kl. 14:00-16:00

Á safninu er fjöldi bóka, tímarita og upplýsingaefnis, bæði til útláns, lestrar og skoðunar á staðnum. Komið við á bókasafninu og kynnið ykkur hvað þar er að finna.

Bókasafnið er staðsett í kjallara íþróttahúss Hrafnagilsskóla og er gengið inn að austan. Ekið er niður með skólanum að norðan. Einnig er hægt að nota sundlaugarinnganga og fara niður í kjallara þaðan.