Frumkvöðlar og fyrirtæki í Eyjafjarðarsveit athugið......

Fréttir

Næstkomandi þriðjudag (5. sept) fer fram opinn kynningarfundur á hraðlinum Startup Storm, sem Norðanátt stendur fyrir. Norðanátt er hreyfiafl nýsköpunar á Norðurlandi og er markmið okkar að skapa kraftmikið samfélag fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á svæðinu sem eru að vinna að nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið.

Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi sem eru að vinna að grænum verkefnum og vilja ná lengra með verkefni sín.

Hér er Facebook viðburður: https://fb.me/e/1tDNGv1ZH