FUNDARBOÐ
654. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, þriðjudaginn 29. apríl 2025 og hefst kl. 08:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Brúarland (ÍB 15) og Brúarland efra svæði (L) (SL), breytingar á skilgreiningu í ASK - 2501006
Kynning skipulagslýsingar á aðalskipulagsbreytingu fyrir Brúarland lauk 3. apríl sl. og
bárust 11 erindi á kynningartímabilinu.
Skipulagsnefnd tekur málið fyrir á 430. fundi sínum.
2. Landsnet - Kerfisáætlun 2025-2034 - Kynning umhverfismatsskýrslu - 2504011
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn vegna Kerfisáætlun 2025-2034, nr. 0509/2025: Kynning umhverfismatsskýrslu (Umhverfismat áætlana).
Skipulagsnefnd tekur eindið fyrir á 430. fundi sínum.
3. Deiliskipulag Hrafnagilshverfis - Óveruleg breyting vegna staðsetningu íbúða eldri borgara - 2504015
Fyrir sveitarstjórn liggur ósk um deiliskipulagsbreytingu frá Eyjafjarðarsveit í þeim
tilgangi að auka sveigjanleika á útfærslu íbúða fyrir eldri íbúa. Gerir núgildandi skipulag
ráð fyrir að íbúðirnar verði í viðbyggingu við skólatröð 9-11 en eftir breytingu verði að
auki heimilt að útfæra bygginguna sem sjálfstæða einingu. Þá verði heimilt að reisa
tengibyggingu eða yfirbyggðan gangstíg milli bygginganna verði það raunin. Áfram
verði gert ráð fyrir allt að tólf íbúðum á þremur hæðum með aðkomu frá Hólmatröð
(götu E) og einu bílastæði per íbúð. Breytingin er ekki talin hafa veruleg áhrif á
aðliggjandi nágranna þar sem hæð húsnæðis og fjöldi íbúða helst óbreytt og er því óskað
eftir að farið sé með breytinguna sem óverulega.
Skipulagsnefnd fjallar um erindið á 430. fundi sínum.
4. Bakkatröð 52 - Smáhýsi, leyfi fyrir fjarlægðarmörkum - 2008011
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi sem frestað var á 331. fundi skipulagsnefndar frá 31.
ágúst 2020, frá Helga Má Pálssyni, lóðarhafa Bakkatraðar 52, þar sem óskað er
samþykkis nágranna vegna smáhýsis sem hann vill byggja 0,5 m frá lóðarmörkum. Í gr.
2.3.5. g í byggingarreglugerð segir að byggja megi smáhýsi allt að 15 fm að stærð í 3,0
m fjarlægð frá lóðarmörkum, en með samþykki nágranna ef smáhýsið stendur nær
lóðarmörkum en það. Erindinu fylgir uppdráttur frá Jónasi Vigfússyni dags. 2019-10-26.
5. Stekkjarhóll lnr 234754 - umsókn um byggingu heilsárshúss 2024 - 2402011
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing vegna deiliskipulags og breytingar á aðalskipulagi
vegna íbúðarlóðar í landi Stekkjarhóls. dags. 8. apríl 2025.
Skipulagsnefnd tekur erindið fyrir á 430.fundi sínum.
6. Brúnagerði 15 L208303 - óveruleg breyting á deiliskipulagi v.hreinsivirkis - 2503041
Fyrir fundinum liggur erindi fyrir hönd lóðarhafa að Brúnagerði 15 L208303, sem
frestað var á 429. fundi nefndarinnar þann 7. apríl, þar sem eftir því er leitað að heimilað
verði að sett sé niður hreinsivirki innan lóðarinnar þrátt fyrir að skv. gildandi
deiliskipulagi sé ætlað að tengja lóðina við sameiginlegt hreinsivirki fyrir
skipulagssvæðið.
Skipulagsnefnd tekur erindið fyrir á 430.fundi sínum.
7. Ályktun aðalfundar - 2504031
Lögð fram til kynningar ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands haldinn á
Hallormsstað 25. mars 2025.
8. Nýsköpunarstefna Eyjafjarðarsveitar - 2209031
Fyrir sveitastjórn liggur til kynningar drög af nýsköpunarstefnu og minnisblað henni
tengdri.
9. Smámunasafnið - Minjasafnið - 2404006
Velferðar- og menningarnefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði samningur til
lengri tíma við Minjasafnið á Akureyri um rekstur sýningar Smámunasafns Sverris
Hermannssonar.
10. Undirbúningur fjármögnunar vegna framkvæmda - 2504033
Skrifstofu- og fjármálastjóri, sveitarstjóri og oddviti hafa átt fundi með fulltrúum
fjármálastofnana þar sem farið var yfir möguleika á fjármögnun á framkvæmdum.
Þeir munu upplýsa sveitarstjórn um gang mála, helstu niðurstöður samtalanna og næstu
skref.
Markmiðið er að tryggja hagkvæma fjármögnun fyrir þær framkvæmdir sem
sveitarstjórn hefur samþtkkt að fara í.
Fundargerðir til kynningar
11. Stjórnarfundur Embættis skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar SBE - 23. apríl 2025 - 2504029
Fundargerð stjórnarfundar Embættis skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar frá 23. apríl lögð fram til kynningar.
12. UMSE - Ársskýrsla 2024 - 2504023
Ársskýrsla UMSE fyrir árið 2024 lögð fram til kynningar.
13. Tónlistarskóli Eyjafjarðar - Fundargerð 149. fundar skólanefndar - 2504008
Fundargerð 149. fundar skólanefndar Tónlistarskóla Eyjafjarðar lögð fram til kynningar.
14. Óshólmanefnd - fundargerð 22.03.2025 - 2504017
Fundargerð Óshólmanefndar dagsett 22. mars 2025 lögð fram til kynningar.
15. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 973 - 2504018
Fundargerð 973. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
16. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 974 - 2504019
Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
17. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 975 - 2504020
Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
18. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 976 - 2504025
Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
19. SSNE - Fundargerð 72. stjórnarfundar - 2504024
Fundargerð 72. fundar stjórnar SSNE fram til kynningar.
20. Molta - 115. stjórnarfundur - 2504022
Fundargerð 115. stjórnarfundar Moltu lögð fram til kynningar.
21. Molta - Aðalfundur 8. apríl 2025 - 2504021
Fundargerð aðalfundar Moltu dagsett 8. apríl 2025 lögð fram til kynningar.
22. HNE - Fundargerð 240 - 2504026
Fundargerð 241. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra lögð fram til kynningar.
25.04.2025
Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.