Hefur þú áhuga á að sjá um eða taka þátt í undirbúningi á Fullveldishátíð sveitarfélagsins?

Fréttir

Velferðar- og menningarnefnd auglýsir eftir aðilum sem hafa áhuga á að sjá um eða taka þátt í undirbúningi á Fullveldishátíð sveitarfélagsins sem fram fer þann 1. desember 2022.

Áhugasamir hafi samband við formann nefndarinnar Berglindi Kristinsdóttur í síma 693-6524 eða á tölvupóst berglind@esveit.is ekki síðar en föstudaginn 9. september nk.