Íþróttamiðstöð Eyjarðarsveitar óskar eftir að ráða karlmann til starfa

Fréttir
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar

Íþróttamiðstöð Eyjarðarsveitar óskar eftir að ráða karlmann til starfa í vaktavinnu. Um er að ræða skemmtilegt og líflegt 100% framtíðarstarf..

Í starfinu felst m.a. öryggisgæsla, afgreiðsla, þrif og baðvarsla. Starfsmenn íþróttamiðstöðvar sinna einnig verkefnum á tjaldsvæði á opnunartíma þess.

Viðkomandi verður að vera orðinn 18 ára, tala íslensku, hafa hreint sakavottorð og geta staðist hæfnispróf sundstaða og setið skyndihjálparnámskeið komi til ráðningar.

Í starfi sundlaugarvarðar er nauðsynlegt að hafa athyglisgáfu í lagi, eiga auðvelt með að taka ákvarðanir og geta brugðist skjótt og fumlaust við ef slys ber að höndum. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, þjónustulund, þolinmæði, stundvísi og jákvæðni.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 13. ágúst 2023.

Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá með upplýsingum um meðmælendur og kynningarbréf viðkomandi umsækjanda.

Tekið er á móti umsóknum á netfangið karlj@esveit.is.

Nánari upplýsingar um starfið gefur Karl Jónsson í síma 691 6633 eða karlj@esveit.is