Klippikort fyrir gámasvæði

Fréttir

Frá og með þriðjudeginum 6. maí verður eingöngu hægt að greiða með rafrænu klippikorti á gámasvæði/endurvinnslustöð sveitarfélagsins í Hrafnagilshverfi. Notkun klippikortsins tekur mið af yfirliti yfir gjaldskylda flokka á gámasvæði sveitarfélagsins og er eitt klipp fyrir hverja 0,25 rúmmetra af gjaldskyldum úrgangi. Samsvarar það um einum stórum ruslapoka. 

Yfirlit yfir gjaldskylda flokka má finna hér gamasvaedi-eyjafjardarsveitar-gjalskrax-2025.pdf

Sækja þarf um klippikortið á slóðinni hér https://esveitarkort.is/yfirlit?code=XSORP 

Athugið að til að sækja um gjaldfrjálst klippikort þarf viðkomandi umsækjandi að vera skráður fyrir viðkomandi fasteign í sveitarfélaginu. 

Íbúar sem þurfa aðstoð með að sækja um kortið eða geta ekki sjálfir nýtt rafrænt klippikort geta leitað aðstoðar í afgreiðslu íþróttamiðstöðvarinnar.