Lausar stöður í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit

Fréttir

Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Skólinn hefur skapað sér afar gott orðspor í gegnum tíðina og samanstendur af frábærum mannauði. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.

Grunnskólakennari á miðstig
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 80 - 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2024. Um er að ræða umsjónarkennarastöðu á miðstigi.

Grunnskólakennari á unglingastig
Óskum eftir að ráða grunnskólakennara í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2024. Starfið felur aðallega í sér stærðfræðikennslu og umsjón með bekk á unglingastigi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hefur kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
  • Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
  • Vinnur í samvinnu við kennara og annað fagfólk.
  • Sýnir árangur í starfi.
  • Hefur hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sýnir frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hefur gott orðspor og krafa er um að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.

Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Skólaliði og starfsmaður í frístund
Inn í öflugan og skemmtilegan starfsmannahóp Hrafnagilsskóla vantar skólaliða og starfsmann í frístund næsta skólaár.

Leitað er eftir starfsmanni sem:

  • Sýnir metnað í starfi.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Er lausnamiðaður.

Forstöðumaður frístundar
Óskum eftir að ráða forstöðumann frístundar í hlutastarf frá 1. ágúst 2024. Forstöðumaður frístundar starfar undir stjórn skólastjóra. Hann ber faglega ábyrgð á starfsemi frístundar, er verkstjóri og næsti yfirmaður starfsmanna í frístund. Hann hefur umsjón með skráningu barna og stendur skil á innheimtulistum. Uppeldismenntun er æskileg.

Leitað er eftir starfsmanni sem:

  • Hefur reynslu af starfi með börnum.
  • Sýnir metnað í starfi.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Getur leyst mál í samvinnu við starfsfólk, nemendur og foreldra.
  • Hefur gott orðspor og gerð er krafa um að framkoma og athafnir á vinnustað sem samrýmist starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2024.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur; Hrund Hlöðversdóttir og Björk Sigurðardóttir í símum 464-8100 og 699-4209. Sótt er um stöður með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð með netpósti á netföngin hrund@krummi.is eða bjork@krummi.is.