Leikskólinn Krummakot flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði þar sem öll aðstaða fyrir nemendur og
starfsfólk verður til fyrirmyndar og hugað er sérstaklega að góðri hljóðvist og lýsingu.
Nú vantar okkur áhugasama og metnaðarfulla deildarstjóra og leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 12 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú 86 börn.
Einkunnarorð skólans eru „Leikur er okkar nám“
Skólasýn er: Virðing, góðvild og festa þar sem gleði og fagmennska ríkir.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða.
Við leggjum áherslu á Jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Allir nemendur hafa aðgang að góðri
aðstöðu til hreyfingar í íþróttahúsi og fá einnig tónlistarstund með tónlistarkennara einu sinni í viku.
Nánari upplýsingar á starfsemi leikskólans má finna á heimasíðu: https://krummakot.leikskolinn.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s, B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar eru mikilvægir eiginleikar.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Umsóknarfrestur til 1. maí og öllum umsóknum er svarað.
Frekari upplýsingar veita Erna Káradóttir eða Sigþóra Baldursdóttir í síma 464-8120, netfang: erna@krummi.is - sigtora@krummi.is
- það verður veisla í ágúst!