Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk - framtíðarstarf

Um er að ræða 100% stöður leikskólakennara/leiðbeinanda

Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólann Krummakot.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:
• Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
• Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
• Lipurð í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2018. Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Umsóknir skal senda til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is