Leikskólinn Krummakot í Eyjafjarðarsveit vill ráða starfsfólk, tímabundin afleysing með möguleika á áframhaldandi ráðningu

Fréttir

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara/leiðbeinanda

Leikskólakennari, leikskólaliði eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi og/eða reynslu af vinnu með ungum börnum óskast til starfa í leikskólanum Krummakoti. Í leikskólanum er 100% stöðugildi skipulagt sem 37 klukkustundir á viku.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 65 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman.

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2024 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf
  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is

Umsóknarfrestur er til 24. október 2022.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Umsóknir sendist til leikskólastjóra á netfangið
erna@krummi.is