Loftslagsmál á mannamáli!

Fréttir

Verið velkomin á Loftslagsdaginn 2023 þann 4. maí í Hörpu og beinu streymi. Skráning er hafin: Skráningarsíða
Athugið að það er takmarkaður fjöldi sæta í sal í boði.

Dagskrá

Á Loftslagsdeginum ætlum við að fjalla um stöðu Íslands í loftslagsmálum á mannamáli.

Við ætlum að leita svara við eftirfarandi spurningum:

  • Hvernig miðar okkur í átt að kolefnishlutleysi?
  • Hvaða breytingar þurfum við að gera á samfélaginu til að ná kolefnishlutleysi?
  • Hvernig skila peningarnir árangri?

Á meðal fjölda spennandi fyrirlesara eru:

  • Daniel Montalvo, sérfræðingur í sjálfbærri auðlindanýtingu og iðnaði, Umhverfisstofnun Evrópu
  • Nicole Keller, teymisstjóri í teymi losunarbókhalds, Umhverfisstofnun
  • Tinna Hallgrímsdóttir, sérfræðingur í loftslagsáhættu og sjálfbærni hjá Seðlabanka Íslands
  • Tómas Njáll Möller, formaður Festu og yfirlögfræðingur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
  • Matthildur Sveinsdóttir, sviðsstjóri hjá Neytendastofu
  • Sverrir Norland, rithöfundur, útgefandi og fyrirlesari

Dagskráin byggir á fjölbreyttum erindum, pallborðsumræðum og spurningum frá almenningi og tækifærum til að blanda geði.

Skoða dagskrá

Fyrir hverja?

Loftslagsdagurinn er hugsaður fyrir:

  • Almenning
  • Stjórnvöld
  • Atvinnulífið
  • Fjölmiðla
  • Vísindasamfélagið
  • Nemendur
  • Öll áhugasöm um loftslagsmál

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Hörpu eða beinu streymi þann 4. maí!

Heimasíða Loftslagsdagsins
Viðburðurinn á Facebook
Umhverfisstofnun