Lokað á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar föstudaginn 10. nóvember

Fréttir

Föstudaginn 10. nóvember verður lokað á skrifstofunni þar sem starfsmenn skrifstofu sveitarfélagsins og Skipulags- og byggingafulltrúa ásamt þeim sveitarstjórnum sem að embættinu standa munu kynna sér skipulagsverkefni og önnur uppbyggileg verkefni í grennd við Árborg og Hveragerði. 

Skrifstofa sveitarfélagsins opnar aftur á hefðbundnum tíma mánudaginn 13. nóvember

Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar.