Nýr körfuboltavöllur lítur dagsins ljós

Fréttir
Körfuboltavöllur
Körfuboltavöllur

Síðastliðinn sunnudag luku UMF Samherjar við uppsetningu á körfum á splunkunýjum körfuboltavelli austan íþróttamiðstöðvar.

Mikil spenna var í krökkunum á svæðinu sem mætt voru með boltana jafn óðum og nýjar körfur voru reistar.

Á næstu dögum verður unnið að því að gangsetja snjóbræðslu fyrir völlinn svo að nýta megi hann vel allt árið um kring. Á komandi voru verður síðan farið í að setja yfirborðið á hann og verður þá þessi glæsilegi völlur að fullu tilbúinn.