Ritlistasamkeppni

Fréttir

Áttunda árið í röð er nú efnt til ritlistakeppni ungskálda á Norðurlandi eystra. Verkefnið heitir einfaldlega Ungskáld og er til þess ætlað að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Sjá nánari umfjöllun hér.

Ritlistasamkeppni
Tilvalið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára á Norðurlandi eystra. Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Engar hömlur eru settar á hvers konar textum er skilað inn, hvorki varðandi efnistök né lengd. Textarnir þurfa að vera á íslensku og mælt er með því að þeim sé skilað á PDF eða Word formi.

Skilafrestur er til miðnættis 16. nóvember 2020 á netfangið ungskald@akureyri.is

Dómnefnd tilkynnir úrslit 3. desember kl. 17.00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.