Samið um síðari áfanga leikskólabyggingar við Hrafnagilsskóla

Fréttir
Sindri og Hreiðar Hreiðarssynir ásamt Finni Yngva Kristinssyni sveitarstjóra við undirritun samnings…
Sindri og Hreiðar Hreiðarssynir ásamt Finni Yngva Kristinssyni sveitarstjóra við undirritun samnings.

Eyjafjarðarsveit hefur samið við B. Hreiðarsson ehf. um síðari áfanga leikskólaviðbyggingar við Hrafnagilsskóla en tvö tilboð bárust í framkvæmdina. Áætlað er að starfsemi leikskólans Krummakots geti flutt í nýtt húsnæði snemma árs 2025.

Verkið var boðið út í tveimur áföngum og er fyrri áfanga leikskólabyggingarinnar þegar lokið, gólfplata og lagnakjallari tilbúin. Síðari áfanginn felur í sér að reisa bygginguna og ganga frá henni svo unnt sé að flytja starfsemi leikskólans Krummakots yfir í nýtt og glæsilegt húsnæði þar sem mögulegt verður að tengja starfsemi leik- og grunnskóla á betri og skilvirkari máta.

Gert er ráð fyrir að ný leikskólabygging rúmi yfir 110 börn á fimm deildum eða um 40% fleiri pláss en nemendur Krummakots fylla í dag. Þá gerir hönnun og innra skipulag byggingarinnar einnig ráð fyrir sveigjanleika til að bregðast við sveiflum í fjölda nemenda bæði til aukningar sem og fækkunar. Á skólalóðinni rís síðan glerskáli sem mun nýtast sem útikennslurými bæði fyrir nemendur leik- og grunnskóla.

Kostnaðaráætlun áfangans var 633 mkr.

Tilboð B. Hreiðarsson ehf. var um 107% af kostnaðaráætlun en tilboð ÁK Smíði ehf. um 109%.