Skipulagsnefnd vinnur að umferðaröryggisáætlun fyrir Eyjafjarðarsveit

Fréttir

Kallað er eftir ábendingum frá vegfarendum sveitarfélagsins um það sem betur má fara í umferðarmálum í sveitarfélaginu. 

Hafa má í huga atriði eins og ástand vega, snjómokstur, umferð gangandi vegfarenda, akandi og ríðandi. Þá er einnig vert að benda á gróður, heft útsýni, erfið gatnamót og heimreiðar svo fátt eitt sé nefnt.

Mikilvægt er að staðsetningar séu skilmerkilega tilgreindar í ábendingum og gott er að hafa myndir með þar sem við á. 

Ábendingar sendist á esveit@esveit.is merkt sem erindi „Ábendingar fyrir umferðaröryggisáætlun“ fyrir 12. janúar 2020.

Skipulagsnefnd