Stór og mikilvægur áfangi hafinn

Fréttir
Viðbygging við Hrafnagilsskóla
Viðbygging við Hrafnagilsskóla

Mikil eftirvænting hefur verið í samfélaginu vegna nýbyggingarinnar og hefur sveitarstjórn unnið skipulega að undirbúningi verksins í nokkur ár bæði í hönnunarfasanum en ekki síst með aðhaldi á útgjaldahliðinni til þess að auka handbært fé sveitarfélagsins fyrir þessari stóru og miklu framkvæmd.

Byggingin verður mikil bylting fyrir skólaumhverfi Eyjafjarðarsveitar um mun starfsumhverfi leikskólastarfsmanna og nemenda strax á næsta ári taka miklum og jákvæðum breytingum. Sérlega spennandi verður að taka þátt í undirbúningi starfseminnar út frá þeim fjölmörgu og fjölbreyttu nýju kostum sem ný bygging mun bjóða uppá fyrir starfsemina.