Þrír umsækjendur um starf skólastóra Hrafnagilsskóla

Fréttir
Hrafnagilshverfi
Hrafnagilshverfi

Þann 18.apríl síðastliðinn rann út umsóknarfrestur vegna stöðu skólastjóra Hrafnagilsskóla. Alls sóttu fjórir einstaklingar um stöðuna en ein umsókn var dregin til baka og verður nafn þess einstaklings því ekki gefið upp.


Þeir þrír sem stóðu eftir vor:
Guðni Eiríkur Guðmundsson
Helga Lind Sigmundsdóttir
Ólöf Ása Benediktsdóttir

 

Þessa dagana er unnið úr umsóknunum og samtali við umsækjendur. Tilkynnt verður um ráðninguna að loknum sveitarstjórnarfundi þann 2.maí næstkomandi.