Aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar ráðinn

Hrund Hlöðversdóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar við Hrafnagilsskóla. Alls sóttu sex um stöðuna, þar af þrír með meistarapróf og mikla reynslu af skólastarfi.

Hrund er með leyfisbréf á leikskólastigi en er menntaður grunnskólakennari með 14 ára reynslu, þar af 10 ára stjórnunarreynslu, aðallega á yngsta stigi grunnskólans. Hún skrifaði lokaverkefni sitt í KHÍ um leik 5 og 6 ára barna og mikilvægi hans í starfi leik- og grunnskóla. Hrund er boðin velkomin til starfa og mun fara í fullt starf frá og með 2. maí.