Æfingabúðir í borðtennis á vegum UMSE og Umf. Samherja á Hrafnagili um næstu helgi

Næstu helgi stendur borðtennisnefnd UMSE fyrir æfingabúðum í borðtennis í samstarfi við Umf. Samherja. Kennari í æfingabúðunum kemur frá Borðtennissambandi Íslands. Einnig verður aðili frá Pingpong.is með í för og ætlar að vera með hluta af vöruúrvalinu sínu meðferðis.

Æfingabúðirnar fara fram á Hrafnagili og verða í þremur lotum. Fyrsta lotan er milli kl. 9:00 og 12:00 laugardaginn 29. nóvember og önnur milli kl.14:00 og 17:00 sama dag. Þriðja lotan verður svo frá kl. 9:00 til 12:00 á sunnudaginn 30. nóvember.
Opið borðtennismót hefst kl. 13:00.

Engin aldurstakmörk eru í æfingabúðirnar og eru iðkendum að kostnaðarlausu og frjálst að mæta í eina lotu eða fleiri eftir því hvað hverjum hentar.
Mótsgjöld í borðtennismótinu eru 500 kr. fyrir hvern þátttakanda.