Álagning fjallskila 2020

Fréttir

Þeir sem halda allt sauðfé og öll hross heima eru beðnir að tilkynna það til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi sunnudaginn 16. ágúst með tölvupósti á póstfangið esveit@esveit.is eða í síma 463-0600. Lagt verður á eftir forðagæsluskýrslum þeirra sem sleppa á afrétt. Þá verður lagt á eftirgjald í fjallskilasjóð kr. 60 fyrir hverja kind og hvert hross sömu aðila.