Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa, sunnudaginn 15. nóvember 2020

Fréttir

Árlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 15. nóvember 2020. Dagurinn er haldinn til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst til að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun.

Í ár verður minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu og verður m.a. sérstakt árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi dagana 13.-15. nóvember. Einkennislag dagsins ferður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðvum á minningardaginn kl. 14:00, lag KK; When I think of angels, og eru landsmenn hvattir til einnar mínútu þagnar. Forseti Íslands mun ávarpa þjóðina í sérstöku myndbandi sem deilt verður m.a. á vefmiðlum. Kl. 19:00 á minningardaginn mun verða sýnt í beinni vefútsendingu á Facebook frá táknrænum minningarathöfnum eininga Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, ásamt fleiri viðbragsaðilum.

Íbúar Eyjafjarðarsveitar eru hvattir til að kveikja á friðarkertum þennan dag.

Hér er hægt að lesa meira um alþjóðlega minningardaginn á heimasíðu Samgöngustofu.