Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar 2016 staðfestur.

Ársreikningur Eyjafjarðarsveitar fyrir árið 2016 tekin til síðari umræðu og samþykktur samhljóða.
Heildartekjur A og B hluta voru 877,4 m. kr., sem er um 9,4% hækkun frá fyrra ári, heildarútgjöld án fjármagnsliða, voru 864,6 m.kr en það er um 6,3% hækkun frá fyrra ári.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 81,9 m.kr.  Ekki voru tekin ný lán á árinu 2016 en eldri lán voru greidd niður um 26,8 m.kr.

Heildar skuldir og skuldbingar í árslok 2016 voru kr. 213,8 m.kr. og er skuldahlutfallið 27,1%. Skuldaviðmið er 13,2% en leyfilegt hámark er 150%. Fjárfestingar ársins námu 31,3 m.kr. Stærri viðhaldsverkefni (markað viðhald) var kr. 21,6 millj. 

Sveitarstjórn þakkar forstöðumönnum stofnanna og stjórnendum fyrir góðan árangur í rekstri sveitarfélagsins.