Hrafnagilsskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara

Óskum eftir að ráða grunnskólakennara að Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Ráðningin er tímabundin í eitt ár. Um er að ræða 100% kennarastöðu á unglingastigi og ráðið er frá 1. ágúst 2016. Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli u.þ.b. 12 km. fyrir innan Akureyri og eru u.þ.b. 150 nemendur í skólanum. Uppeldisstefna Hrafnagilsskóla er Jákvæður agi og lögð er áhersla á teymisvinnu.

Í starfinu felst:

  • Umsjón í 10. bekk.
  • Íslenskukennsla á unglingastigi og kennsla í öðrum námsgreinum.
  • Kennsla í sérdeild unglingsstúlkna.

 Leitað er eftir kennara sem:

  • Hefur kennaramenntun.
  • Sýnt hefur árangur í starfi.
  • Lagar kennslu- og starfshætti markvisst að þörfum nemenda.
  • Sýnir metnað fyrir hönd nemenda.
  • Er í góðri samvinnu við foreldra og allt starfsfólk.
  • Er fær og lipur í samskiptum.
  • Býr yfir frumkvæði og skipulagsfærni og sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.

Umsóknarfrestur er til 23. maí 2016.

 Nánari upplýsingar veitir Hrund Hlöðversdóttir skólastjóri í símum 464-8100 og 699-4209 eða á netfangið hrund@krummi.is.

Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is