Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Eyjafjarðarsveitar fyrir árin 2020-2023. Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja í Eyjafjarðarsveit um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.

Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er bent á að senda þær á esveit@esveit.is í síðasta lagi 20. október 2019.