Fjölskyldusirkushelgi í Eyjafjarðarsveit

Húlladúllan heimsækir Eyjafjarðarsveit helgina 25.-26. maí með hina frábæru fjölskyldusirkushelgi. Við munum njóta helgarinnar saman í Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar, læra nýja og spennandi hluti, hlæja, svitna og gleðjast. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt saman burtséð frá aldri og stærð.

Fjölskyldusirkushelgin felur í sér tveggja daga kennslu þar sem þáttakendur fá að prófa hinar ýmsu sirkuslistir og og sirkusáhöld undir leiðsögn tveggja frábærra kennara. Húlladúllan Unnur Máney leiðir kennsluna og með henni er Erna Héðins, kennari og markþjálfi. Kennt er í sex klukkutíma laugardag og sunnudag með klukkutíma hádegishléi hvorn dag, frá klukkan 11:00 til klukkan 17:00.

Hver smiðja getur tekið við 50 þáttakendum frá grunnskólaaldri og upp úr. Þáttökukostnaði er haldið í lágmarki en aðeins er rukkað 2000 króna skráningargjald fyrir hvern þáttakanda. Þetta er mögulegt þökk sé stuðningi Norðurorku og Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra ásamt stuðningi þeirra sveitarfélaga sem taka þátt, í formi afnota af aðstöðu.

Frekari upplýsingar og skráning á vefsíðunni: https://hulladullan.is/