Flugeldasala Hjálparsveitarinnar Dalbjargar í Hrafnagilsskóla

Fréttir

Að venju mun Hjálparsveitin Dalbjörg vera með flugeldasölu í Hrafnagilsskóla. Þó með óhefðbundnum sniði í ár. Við erum komin með netsíðu, þar sem hægt er að versla flugelda á netinu og greiða fyrir þá þar. Við munum láta vita þegar pöntunin er klár og þá getur viðkomandi sótt hana við inngang miðstigs í Hrafnagilsskóla.
Netsíðan er dalbjorg.flugeldar.is

Sölustaðurinn mun vera opinn áfram en þar inni gildir grímuskylda og við virðum tveggja metra regluna. Ekki fleiri en 10 manns verða leyfðir inni í einu.
Fyrir minnstu spurningar minnum við á flugeldasímann – 863-1271.

Opnunartímar verða sem hér segir:
• 28. desember kl. 13:00-22:00
• 29.-30. desember kl. 10:00-22:00
• 31. desember kl. 9:00-16:00
• 5. janúar kl. 19:00-21:00 (Dalborg)

Við viljum hvetja sveitunga okkar og velunnara að nota netsíðuna eins og völ er á, en allir eru auðvitað velkomnir í búðina með grímu og eigin sóttvarnir á hreinu.
Einnig viljum við hvetja fólk sem hyggst mæta á staðinn til að nýta allan opnunartíma flugeldastaðarins svo síður safnist saman hópar og verði mannþröng.
Minnst er að gera fyrripart dags.

Rótarskotin verða á sínum stað – Rótarskot síðasta árs voru gróðursett á Ólafsfirði.

Flugeldasalan er ein af okkar stærstu fjáröflunum og hlökkum við til að sjá eða heyra frá sveitungum okkar. Kveðja, Hjálparsveitin Dalbjörg.