Folalda- og ungfolasýning Náttfara

Folalda- og ungfolasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara verður í Melaskjóli, Melgerðismelum, laugardaginn 28. janúar 2012. Hrossin verða sköpulagsskoðuð frá kl. 10 og hlaupaæfingar hefjast kl. 13.

Eyþór Einarsson mun stýra dómshaldi. Skráningar berist til Þorsteins á Grund um tölvupóst í netfangið theg@isor.is fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar. Skrá þarf nafn og fæðingarnúmer hrossa ásamt símfangi umráðamanns.