Forstöðumaður Íþróttamannvirkja Eyjafjarðarsveitar

gudrun_passamynd_120 Guðrún Sigurjónsdóttir hefur tekið til starfa sem forstöðumaður Íþróttamannvirkja Eyjafjarðarsveitar og er hún boðin velkomin til starfa.


Guðrún fæddist í Skagafirði 07. nóvember 1970 og hefur búið á Akureyri undanfarin 6 ár. Sambýlismaður hennar er Eiríkur Kristján Aðalsteinsson og eiga þau eina dóttur, Sigrúnu Dalrós 2 ára. Guðrún er tækniteiknari að mennt og lauk að auki námi frá Tölvuskólanum Þekkingu í Tölvu og bókhaldsnámi árið 2007. Hún hefur unnið ýmis störf, meðal annars sem sundlaugavörður hjá Sundlaug Akureyrar, við umsjón veitinga og upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn og sem kennari hjá Tölvuskólanum Þekkingu.