Frummatsskýrsla - Þverárnáma

Verkfræðistofa Norðurlands ehf hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Þverárnámu í Eyjafjarðarsveit.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 6. mars til 17. apríl 2013 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu og bókasafni Eyjafjarðarsveitar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu verkfræðistofu Norðurlands: www.vn.is og/eða einnig hér.

Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. apríl 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.

Framkvæmdaraðili stendur fyrir opnu húsi í Golfskálanum að Þverá, Eyjafjarðarsveit, þriðjudaginn 12. mars 2013, kl. 17:00-18:00.

Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.

Skipulagsstofnun