Fundarboð 601. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

Fréttir

Fundarboð.
601. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 22. desember og hefst hann kl. 8:00. 

Dagskrá
Almenn erindi
1. Samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar - 2212013
Þann 16. desember síðastliðinn náðist samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk milli þriggja ráðuneyta og sambands íslenskra sveitarfélaga.
Samkomulagið gerir ráð fyrir að hámarksútsvar sveitarfélaga, sem ákveðið er í 1. mgr. 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem er nú 14,52%, skuli hækkað um 0,22% samhliða lækkun á tekjuskatts um samsvarandi hlutfall í báðum skattþrepum.

Gert er ráð fyrir að hækkun hámarksútsvars skv. 2. mgr. renni í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Hlutfall útsvarstekna vegna málefna fatlaðs fólk sem fer í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga skv. 2. tölul. c-lið 8. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga er nú 0,99% og skal hlutfallið því hækka um 0,22% stig samhliða hækkun hámarksútsvars í 1,21%.

Breytingar á hámarksútsvari sveitarfélaga taka gildi fyrir árið 2023 og sveitarfélögum verður heimilað að ákvarða útsvar vegna ársins 2023 eigi síðar en 30. desember 2022 og tilkynna það fjármálaráðuneytinu eigi síðar en þann dag, sbr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.

Í samkomulaginu kemur fram að aðilar séu sammála um að hækkun útsvarstekna sveitarfélaga samkvæmt samkomulaginu, verði hluti af framlögum Jöfnunarsjóðs sem veitt eru til sveitarfélaga vegna málefna fatlaðs fólks á grundvelli þeirra laga og reglna sem gilda um framlög sjóðsins til málaflokksins, sbr. m.a. 2. mgr. 13. gr. a. laga um tekjustofna sveitarfélaga.

 

Með bestu kveðju, Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri