Handverkshátíðin opnar á hádegi í dag

Á hádegi í dag opnar Handverkshátíðin í 23. sinn og getum við lofað einni glæsilegastu sýningu hingað til. 
Alls verða 94 sýnendur alla helgina. Þar að auki taka 55 aðilar þátt á handverks- og matarmarkaði. 
Handverksmarkaðurinn fer fram fimmtudag, föstudag og sunnudag en á laugardeginum bjóðum við upp á matarmarkað úr Eyjafjarðarsveit. Á þeim markaði verður margt spennandi í boði svo sem kornhænuegg og broddur. Á mörkuðunum verða nýir sýnendur í hvert sinn svo ef þú vilt ekki missa af neinu, heimsæktu sveitina.