Handverkshátíð 2011

Handverkshátíð 2010Handverkshátíðin 2011 verður formlega sett á föstudaginn 5. ágúst n.k. og mun standa til mánudagsins 8. ágúst.

Heimasíða hátíðarinnar er  www.handverkshatid.is og nánari upplýsingar má einnig fá hjá Ester Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar í síma 824 2116.

Verið er að leggja lokahönd á undirbúning hátíðarinnar. Fjölbreytnin hefur aldrei verði meiri og sýnir hún glöggt þá miklu grósku sem er í íslensku handverki og hönnun í dag. Af þeim hundrað sýnendum sem taka þátt í ár eru um helmingur nýir aðilar alls staðar af landinu. Þar á meðal má nefna Sápurbakaríið, Fjöruperlur, Handverkskompaníið og prjónablaðið Lopi og band sem kemur nú út að nýju eftir margra ára hlé.

Fjölbreytt dagskrá er á útisvæðinu með tískusýningum, Hundaræktarfélag Íslands á Norðurlandi verður með kynningu á ýmsum hundategunum, hlutverki þeirra og ræktun og Félag ungra bænda á Norðurlandi býður upp á kálfasýningu, rúning, ungbændakeppni og dráttavélaþraut. Tímasetningu viðburða má sjá hér.

Það er fastur liður að bjóða upp á spennandi handverksnámskeið í tengslum við hátíðina og að þessu sinni eru það þær Linda Óladóttir listamaður og Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður sem verða með námskeið í frjálsum útsaum í saumavél, gerð skrautblóma og tauþrykk svo eitthvað sé nefnt.

Hátíðin verður opin alla 4 dagana frá klukkan 12-19. Eins og áður sagði má finna nánari upplýsingar um sýnendur og dagskrá hátíðarinnar má finna á www.handverkshatid.is